Í næsta mánuði munu vinir mínir hjá Lindex launcha nýrri línu innan veggja sinna, Lindex Extended.
Línan verður með extra vandaðann fatnað og pínu posh.
Mjög fáar verslanir verða með hana í sölu til að byrja með en Íslendingar þurfa ekki að örvænta því Lindex í Smáralind er ein af þeim.
Extended er framúrstefnuleg viðbót við aðrar Lindex línur það sem einkennandi er áreynslulaus hátískustíll. Línan minnir mig á sambærilegt uppáhalds frá H&M, H&M Trend, sem er koncept innan þeirra verslunar þar sem maður finnur alltaf eitthvað must have. Að mínu mati held ég að ef Lindex Extended verður vel heppnað þá eigi það eftir að gera mjög mikið fyrir tískuþorstann í viðskiptavinum verslunarinnar. Mér finnst þetta allavega svaka spennó!
Til að byrja með koma í sölu 10 flíkur í hlutlausum litum, s.s. svörtum, gráum og kremlituðum. Fyrsta línan er væntanleg í verslanir 13.febrúar.
Úllala … Ég hlakka til að sjá meira. Þetta lofar góðu.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg