Þessi stígvel (!) , sem gengu pallana hjá Burberry Prorsum í London á dögunum …… hvar á ég að byrja?
Ég veitti þeim fyrst athygli á súpermódelinu Cara Delvigne sem mætti sem gestur á sýninguna að þessu sinni, en hún hefur mikið unnið fyrir tískuhúsið síðustu árin. Cara var bæði í jakka og stígvélum úr haustlínunni og spyr fólk sig hvort þetta sé það sem koma skal? Verða stærstu andlitin komin í klæði pallana heilu tímabili fyrr? Cara sat í frontrow með þekktum andlitum sem einnig fengu að taka forskot á sæluna klædd í Burberry Prorsum AW15. Sem dæmi var Kate Moss í kögurslá sem margur girnist.
Bohemaian fílingur yfir öllu hjá tískuhúsinu að þessu sinni.
OG – stígvélin sitja efst eftir í huganum.
Langar ..
HÉR getið þið skoðað línuna í heild sinni.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg