Súpermódelið Karlie Elizabeth Kloss er andlit herferðar Lindex fyrir línuna sem hönnuð er af Matthew Williamson.
Hin ameríska Karlie er 21 árs og talin vera eitt af stóru nöfnunum í módelbransanum. Hún hefur prýtt forsíður helstu tískutímaritanna ásamt því að vera andlit margra af stærstu tískuhúsanna og þá er hún einnig Victoria’s Secret engill. Ég lét fylgja með nokkrar myndir af dömunni.
Hún er ekki bara súpermódel eða andlit herferðarinnar heldur er hún einnig íslandsvinur eftir heimsókn hennar á klakann fyrr í sumar. Sjá: HÉR
Finnst gaman að fylgjast með þessari og hlakka til að halda því áfram enda ung og enn á uppleið.
xx, -EG-
Skrifa Innlegg