fbpx

Karlie Kloss á Íslandi

Fræga FólkiðFyrirsætur

Ein af stjörnunum sem ég fylgist með á Instagram er ofurfyrirsætan Karlie Kloss – en það er greinilegt að hún hefur verið stödd hér á landi undanfarið. Alla vega miðað við þessar myndir sem hafa birst hjá henni síðustu daga:)

Ég sá það greinilega að Instagram er frábær kynning fyrir landið – þessar stjörnur eru með svo marga fylgjendur og allir dásömuðu þessar fallegu myndir af íslenskri náttúru. Ég rak reyndar augun í eitt skemmtilegt komment þar sem einn fylgjandi Karlie sagði að Ísland liti svolítið út eins og Mars:)

Það hefði nú verið gaman að rekast á þessa fögru konu niðrí bæ í dag en hún yfirgaf landið í gær og birti neðstu myndina og þakkaði kærlega fyrir sig!

EH

Jibbí Jeijj!

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. María

    17. June 2013

    Hún var í fjórhjólaferð í gær á vegum óbyggðaferðir í Fljótshlíð. Við fjölskyldan vorum í hóp á eftir henni og mælum hiklaust með, mögnuð ferð sem íslendingar verða að prófa !!! Og hún Karlie Kloss virtist mega sátt líka. Fyndnar myndir af henni hér úr ferðinni með deitinu sínu
    (Josh Kushner); http://www.flickr.com/photos/68525703@N00/sets/72157634163870565/