Ég held uppá báða þessa íslensku listamenn sem að sameinuðu krafta sína í nýbirtum myndaþætti.
Fatnaðurinn er frá JÖR og það var SagaSig sem tók myndirnar.
Ég er sérstaklega hrifin af nærmyndunum af módelunum þar sem að Saga nær hverjum og einum karakter á svo sjarmerandi ólíkan máta – love.
Svarthvítt er svo fallegt og fer fatnaði JÖR ótrúlega vel.
Það styttist í kvenfatnaðinn í verslunina á Laugaveginum. Ég held að það líði svo ekki á löngu þangað til að ég get nálgast þau nær mér, í Paris. Hef mikla trú á að JÖR eigi eftir að ná langt.
Áfram Ísland ! ;)
Myndir: Saga Sig
Stílisering: Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir
Hár: Steinunn Ósk
Förðun: Fríða María
Framleiðsla: Júlíanna Ósk Hafberg
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg