Frábærar fréttir úr íslenska tískuheiminum…
En eins og ég hef áður skrifað um þá er von á glanstímaritinu Glamour á íslensku.
Þetta verður í fyrsta sinn sem alþjóðlegur miðill kemur út á íslensku og ritstjórinn verður engin annar er snillingurinn og meðeigandi á Trendnet – Álfrún Pálsdóttir. Það er aldeilis góð trygging fyrir því að vel verði staðið að blaðinu.
Samkvæmt Helgarblaði Fréttablaðsins sem kom út í dag, þá hefur Álfrún þetta að segja um íslenska Glamour:
„Okkar stefna er að búa til faglegt tímarit sem er leiðandi í tísku-og lífstíltengdri umfjöllun á Íslandi ásamt viðtölum og öðru áhugaverðu efni.”
Álfrún hefur nælt í gott teymi sem mun vinna að blaðinu og má þar nefna Silju Magg ljósmyndara sem mun gegna hlutverki ljósmynda- og tískustjóra.
Ég get ekki beðið eftir að geta sest á gott kaffihús í Reykjavík og geta flett í gegnum íslenskt glanstímarit.
Spennandi …
Áfram Ísland!
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg