English Version Below
Góðan daginn! Dagurinn fer í að telja niður mínúturnar í leikinn…
Ég var í svo miklu hamingjukasti eftir leikinn gegn Englendingum. Við horfðum á hann norður á Akureyri í gráu rigningarveðri en við völdum líklega verstu vikuna veðurfarslega til að heimsækja sumarbústað sem fjölskyldan á austan við bæinn. Þegar við keyrðum aftur í bústaðnum í miklu adrenalíni eftir úrslitin þá að sjálfsögðu ákvað sólin að sýna sig svona fallega … eins og það hafi verið ákveðið að leyfa henni að koma örlítið fram bara vegna sigursins. Það lifnaði allavega enn meira yfir mér og við mæðgur hoppuðum inní sólarlagi. VÁ! Ísland var í alvöru best í heimi þetta kvöldið.
Ég vona svo innilega að sagan endurtaki sig í kvöld gegn Frökkum og það er vel mögulegt því þessir mögnuðu strákar virðast ósigrandi.
ÁFRAM ÍSLAND
//
I spent a week in our summer house in the north of Iceland, close to Akureyri. After the Iceland won against England the sun was shining and me and my daughter jumped into the sunset. It was a happy evening and I hope we can repeat it tonight against France.
GO ICELAND!
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg