fbpx

ÍSAKFREYR.COM

FASHIONFÓLKÍSLENSK HÖNNUN

Förðunarsnillingurinn Ísak Freyr opnaði nýja vefsíðu í vikunni, iskakfreyr.com. Ísak er ótrúlega vinnusamur og hefur svo sannarlega unnið fyrir sinni velgengni, en í dag er hann búsettur í London þar sem hann hefur nóg að gera í sínu fagi. Ef það eru ekki tískuþættir fyrir hin ýmsu tímarit þá eru stjörnurnar á hælunum á honum fyrir rauða dregilinn. Þegar ég fletti í gegnum síðuna hans í gærkvöldi náði ég að gleyma mér í fallegum myndum. Þið sjáið hvers vegna hér fyrir neðan.

1468665_10152009222651195_2055496266_n

Þrjár spurningar á Ísak – 

Lengi i bransanum?
Ég er búinn ad vera 7 ár í bransanum síðan ég útskrifaðist frá faginu árið 2007.

Uppáhalds verkefni?
Það var án efa Crepusculum eftir Gabríelu Friðriksdóttir. Þá fórum við saman í hóp, Gabríela, Hrafnhildur Hólmgeirs, Sigga Boston, Erna Ómars og fleiri til Vestfjarða í viku að skjóta verkið hennar Gabríelu. Mun aldrei gleyma þeirri draumaferð. Opnaði nýjar víddir fyrir mér.

Draumajobbið?
Draumajobbið væri að gera verkið sem ég er að skrifa handritið af að veruleika. Það mun gerast.

I LOVE FAKE MAGAZINE

I LOVE FAKE MAGAZINE

_VAULT MAGAZINE

VAULT MAGAZINE VAULT MAGAZINE

VAULT MAGAZINE CIRCUS BOOKAZINE

CIRCUS BOOKAZINE MIISTA AW11

MIISTA AW11 VIVA MODA!

VIVA MODA! COCO DE MER_

COCO DE MER COCO DE MER

COCO DE MER

Ísak er góður vinur ljósmyndarans Sögu Sig og hefur unnið mikið með henni. Hún uppfærði sína vefsíðu nýlega, sagasig.com fyrir áhugasama.

_HILDUR YEOMAN

HILDUR YEOMAN HILDUR YEOMAN

HILDUR YEOMAN ID-online

ID-online

Þetta er aðeins brot af þeim verkefnum sem Ísak hefur verið með fingurnar í. En meira getið þið skoðað: HÉR

xx,-EG-.

Í GÆR

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Heba

    11. February 2014

    <3