Í einum af jólapökkunum leyndust þessi fallegu undirföt. Ég hafði áður lýst yfir hrifningu minni á þeim (hér) þegar þau lentu í verslun JÖR á Laugavegi. Ég ætlaði ekki endilega að deila þeim aftur á bloggið en ég kemst eiginlega ekki hjá því eftir að auglýsingar frá merkinu hafa endurtekið heillað mig. JÖR hefur deilt nokkrum myndum frá undirfatamerkinu á samskiptamiðla sína og ég verð í kjölfarið að sýna ykkur þær líka. Ég tek ofan fyrir svona birtingum í tískuheiminum í dag og vill fá að sjá miklu meira af allskonar líkamsvexti í fronti merkjanna – hvað þá hjá undirfatamerki.
Fögnum fegurð í öllum myndum. Lonely Lingerie virðast alveg vera með þetta!
Er ekki sagt að vorið komi í mars? Ég bíð spennt eftir hækkandi tölu á hitamælinum. Þessar selja mér hugmyndina á að leyfa nærfötin á ströndinni í sumar.
Ný(leg) í minn fataskáp.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg