Ég kolféll fyrir þessum fléttuhring sem ég mátaði á þumalfingur á Revolver á tískuvikunni í janúar. Um er að ræða hring frá sænska merkinu Syster P sem AndreA selur í Hafnarfirði. Þið sem eruð að fylgja mér á Instagram vitið að ég ber alltaf hring á þumalfingri og þið spyrjið mig reglulega hvaðan hann er, sá var keyptur í random skartgripa verslun í Halmstad fyrir örugglega 11 árum síðan. Gunni gaf mér hring í gjöf sem var alveg óvart of stór og ég elskaði þumal lúkkið sem varð til þess að ég skipti aldrei í minni.
Nú er kannski kominn tími til að eiga til skiptanna, þessi fléttu fyrir fínni tilefni? Ég er allavega ennþá að hugsa um hann.
FRIYAY – skál í bubblur. Má vera kampavín eða bara sódavatn? Bæði betra ..
Að sjálfsögðu mjög fallegur á þessum fingri líka, fyrir þá sem það kjósa.
Eigið góða helgi.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg