Tískusýning H&M Studio fór fram í Parísarborg í gærkvöldi. Sýningin er sýnd í beinni online og hef ég tileinkað mér að fylgjast með henni síðustu árin og deila broti með ykkur. H&M Studio er undirlína hjá fyrirtækinu sem stílar inn á meiri gæði og glamúr – meira fashion. Vegna þessa er hún örlítið dýrari en gengur og gerist hjá versluninni og fæst einungis í völdum verslunum. Haustið lofar góðu, ég tók saman mín uppáhalds dress.
“Geimfarar” gengu pallanna –
Þessi fer líklega ekki í framleiðslu, en hver veit –
Kendell Jenner var meðal þekktustu nafnanna ..
Ég er þó ekki hrifin af hennar outfitti –
.. Gigi Hadid –
Skíðabuxnalúkkið er eitthvað sem ég vil sjá meira af –
White on white ennþá save samkvæmt þessu –
Bronze í boðinu –
Heilgallarnir heilluðu mig mest –
Þetta er bara brot af því besta en HÉR sjáið þið sýninguna í heild sinni.
Það hlýtur að teljast viðurkenning fyrir brandið að STYLE.COM birti myndir frá pöllunum. Það hafa þeir ekki gert áður.
Hér var stuð –
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg