fbpx

HÁTÍÐARGJÖF

TRENDNETWORK

Eins og fór eflaust ekki fram hjá neinum lesenda Trendnet þá drógum við út jólagjafabréf Icelandair í jólagjöf fyrir tvo heppna lesendur á dögunum. HÉR & HÉR

4245217015_9f8d6c40df_z
Okkur hjá Trendnet langar að vera enn gjafmildari um jólin og gleðja einhvern sem á um sárt að binda. Við leitum að einstakling sem að þarf jafnvel að liggja inná spítala yfir hátíðirnar. Eða á yfir höfuð erfitt á þessum tíma þegar að allir eiga rétt á gleðilegum tímum.
Ef þið þekkið einhvern lesanda Trendnet sem er í aðstöðu sem þessari þá megið þið senda okkur línu á trendnet@trendnet.is.
Segið okkur hver á í hlut og örlítið frá þeirra aðstæðum. Við munum síðan velja rétta einstaklinginn sem hlýtur veglegan glaðning frá okkur um jólin.

Það væri vel þegið ef þið smellið á like takkann á þessari færslu svo að pósturinn dreifist.

Að sjálfsögðu er erfitt að velja einn til að gleðja, því margir eiga sjálfsagt glaðninginn skilið. En ef allir myndu nú gleðja einn þá verða margir glaðir yfir hátíðarnar.

Annars þökkum við fyrir frábærar móttökur í Facebook leik okkar.

Góðar stundir.
xx,-EG-.
TRENDNET

LINDEX HEIMSÓKN: Í GÆR

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Renata Anna Nowak

    22. December 2013

    :)