Þar sem að væntanlegir flutningar eru handan við hornið þá byrjar maður að ákveða næsta heimili í höfðinu. Hingað til hef ég lítið verið með lifandi plöntur inná heimilinu (fyrir utan föstudags blómin sem eru föst hefð) en það er að breytast því ég gæti vel hugsað mér lifandi græna lykt seinna í sumar í Þýskalandi. Á Pinterest fékk ég að láni nokkrar myndir sem gefa plöntum góð skil. Fallegt fyrir framtíðina.
Annaðhvort er ég að eldast eða að grænt byrjar að heilla með hækkandi sól… mögulega bæði.
Allt sem er grænt grænt finnst mér vera fallegt …
Það er gaman að plana nýtt heimili. Og einnig að kunna að breyta aðeins til.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg