Það er ansi margt sem kallar nafn mitt í verslunum Ginu Tricot þessa dagana. Hér fylgið þið mér í mátun, (meðal annars) þessar fjórar flíkur með í för. Allt basic í “litum” sem ganga allt árið um kring. Það er okkur að skapi!
Gina vinkona mín hefur ollið mér smá vonbrigðum síðustu árin, ég er því glöð að sjá að hún sé að taka við sér aftur. Gamla góða verslunin sem ég kunni svo vel að meta þegar ég bjó í Svíþjóð. Líklega nýjir hönnuðir komnir í teymið – miðað við það fasjón sem hún býður okkur uppá þessa dagana. Vörurnar að neðan eru á óskalista … verðið skemmir ekki fyrir.
Happy shopping!
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg