Nýjasta herferð hátískuhúss Louis Vuitton ætti eflaust að hjálpa Íslandi við að kynna fegurðina fyrir ferðamönnum. Ég sjálf fæ heimþrá og ævintýravon þegar ég fletti í gegnum myndirnar sem eru hverri annarri fallegri. Með myndunum vill tískuhúsið að við leitum í okkar innra barn, að við fáum hugmyndaflugið til þess að færa okkur á áfangastaði drauma okkar á meðan við getum ekki heimsótt þá í raunveruleikanum.
Það var ljósmyndarinn Viviane Sasssen sem tók myndirnar fyrir franska tískuhúsið og hin íslenska Ellen Lofts sá um stíliseringu. Regina Rourke var listrænn stjórnandi verkefnisins og fleiri Íslendingar áttu þátt í gerð myndanna. Ég mæli með að fylgja Reginu á Instagram HÉR og Elleni á Instagrarm HÉR
Vá. Það þarf ekki að hafa fleiri orð um þessa fegurð –
Verðmæti allra þessara fylgihluta er eflaust eitthvað ..
Hugsað út í hvert smáatriði, sjáið þið steinana hér að ofan, hvernig þeim er raðað fallega
Áfram Ísland!
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg