Fyrir ykkur sem að eigið leið til Parísar fyrir jólin þá mæli ég með Colette, frábærri verslun sem að selur eitthvað fyrir alla.
Colette er staðsett á 213 Rue Saint-Honoré og er einmitt í sömu götu og &OtherStories svo þið getið þar slegið tvær flugur í einu höggi. Verslunin selur hönnun og merki í öllum verðklössum, er með snyrtivörudeild, bókasölu, fylgihluti, hátísku og kaffihús allt undir sama þakinu. Svo eitthvað sé nefnt. Hún er líka tilvalin að heimsækja ef að þið viljið eiga von á að rekast á fræga í tískuborginni en þeir eru nokkrir sem að koma þar við reglulega – enda skemmtilegt og létt andrúmsloft að heimsækja. Colette er líka mjög virk á Instagram en þar náði ég í myndirnar fyrir ykkur að sjá úrvalið sem að þar býðst – ég hélt textanum á hverri mynd þegar að ég klippti þær svo að þið getið séð hvaða vörur eru hvað.
Voila.
Þetta er verslun fyrir hann og fyrir hana í pakkann fyrir jólin. Og já þau eru mjög virk á Instagram en þessar myndir hér að ofan brot af birtingum aðeins 5 vikur aftur í tímann.
Smá Parísar tips sem að geta nýst núna sem og síðar fyrir ykkur öll.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg