fbpx

Claire Judge & Other Stories

LOOKBOOK

Ég hef áður (og oftar en einu sinni) tjáð ást mína á nýja H&M barninu – &OtherStories. Í þetta sinn er það september sem að kallar.
Þann 15. ágúst tilkynnti verslunin að nýjasta collectionið væri samstarf milli keðjunnar og skapanda merkisins Alöe Loungewear, Claire Judge, sem er þekkt fyrir lúxus undirföt og prêt-à-porter föt.

Línan sem Claire hannaði fyrir & Other Stories er sígild og inniheldur undirföt og “loungewear”. Línan er byggð upp á appelsínugulum, bláum og hvítum tónum ásamt blómamynstri.

Ég á nokkur undirföt frá versluninni og hef hingað til verið mjög ánægð með þá deild innan verslunarinnar. Ég er því sérstaklega spennt fyrir septemer þegar að vörurnar koma í búðir. 

 

197625_597040837015316_1073958837_n 536784_597040613682005_1529328427_n 536784_597040610348672_2051976351_n 536784_597040603682006_1121315927_n 536784_597040600348673_721753815_n 1146667_597040243682042_659884676_n 1146667_597040240348709_1173564994_n 1146667_597040237015376_326742406_n 1146667_597040233682043_537435466_n 1146667_597040230348710_828883346_n 1098394_593720260680707_1648160099_n 1185596_593720674013999_2075672038_n

Svona léttklæðnað kýs maður heima hjá sér og því vel við hæfi að taka myndirnar í þannig umhverfi.
Elska lookbook-ið. Módelið er svo flott og persónulegi sjarminn skilar sér í myndunum.

Æ lov!

xx,-EG-.

NÝJU BRILLURNAR

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Elín Eva

    24. August 2013

    ég <3 þessa búð! Nýja uppáhalds ;)