fbpx

CARRIE IN REAL LIFE?

FASHIONFÓLKINSPIRATION

Að ég sé ekki búin að pósta þessu myndbandi er algjör skandall, ég kenni tímaleysi um það. En hér kemur það loksins eftir að hafa sjálf horft á það ansi oft síðustu vikuna.
Met Gala fór fram 2 maí og ég fylgdist með að einhverju leyti. Ég hef mest gaman að því að sjá dressin sem stjörnurnar velja fyrir þetta stóra kvöld en þar eru yfirleitt síðkjólar frá stærstu hönnuðunum í aðalhlutverki. Sarah Jessica Parker var ein af þeim sem fór aðrar leiðir að þessu sinni en hún mætti í dásamlegri dragt frá Monse.
sjp-vogue-3may16-pa

Vogue hefur farið skemmtiegar leiðir á svona kvöldum en þá fer hinn frábæri André Leon Talley á stjá og talar við stjörnurnar á “rauða” dreglinum. Viðtalið við Söruh Jessicu Parker lét mig halda að hún væri heldur vinkona mín Carrie Bradshaw úr Sex and the City.

Ohh hún er svo æðisleg !! Með sinn persónulega stíl og sjarma. Pressið á play.

 

Æ er hún ekki bara Carrie Bradshaw í raunveruleikanum líka !? Ég held það …

//

Sarah Jessica Parker and Andy Cohen talk to Vogue’s André Leon Talley on the Met Gala red carpet about Parker’s 18th century-inspired outfit and how they define creativity. Ohh I think she is Carrie Bradshaw in real life as well … In love with her!

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

AFMÆLISLÍFIÐ

Skrifa Innlegg