Þessa dagana fylgist ég með tískuvikunni í Stokkhólmi sem nú stendur yfir. Á tískuvikum er alltaf eitt og eitt sem fangar auga mitt og í gær voru það þessir skór frá Carin Wester sem festust í huganum … sem er ástæðan fyrir því að ég sit hér eldsnemma morguns og skoða þá enn frekar og deili ástríðunni með ykkur.
Skemmtilega hannaðir slippers sem lúkka þægilegir þó þeir séu örugglega ætlaðir fínni tilefnum. Eitt par fyrir mig takk fyrir pent !
Carin er þekkt fyrir að hanna flíkur sem búa yfir klassa og henni tókst vel til þetta árið. Dressin hér að ofan voru mitt uppáhalds en HÉR getið þið flett yfir sýninguna í heild sinni. Sænsk tíska heillar .. þessir skór verða að vera mínir!
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg