fbpx

BEST KLÆDDU

ALMENNTMAGAZINE

Að mati álitsgjafa Fréttablaðsins.
Ég var og er sammála.

Ég fékk það hlutverk fyrir stuttu að segja mitt álit á best klædda fólki landsins fyrir Fréttablaðið. Það var ánægulegt að sjá að báðir mínir einstaklingar enduðu svo sem þeir allra bestu. Þau eiga það fyllilega skilið enda flott og framtækilegt fólk.

Að mínu mati – Af hverju Svala?
Íslenskar konur eru meðvitaðar um tískustrauma og fylgja þeim gjarnan eftir. Svala er mikil fashionista án þess að elta endilega nýjustu línur hátískuhönnuðanna. Með sérstakan, áberandi og 100% sinn stíl sem að heillar augað.

Að mínu mati – Af hverju Gummi?
Annaðhvort á leiðinni í veiði eða á leiðinni í flottan galadinner sirka 1950 – það er Gummi.
Mikið sjentilmenni og smart.

_

Ég tók eftir því að nafn Helga var ritað undir mínum orðum hjá Svölu, en það hlýtur að vera lítilsháttar prentvilla hjá blaðinu.

Íslendingar kunna að klæða sig og það verður ekki af þeim tekið. Ég hlakka til að fylgjast enn frekar með þessum tveimur næsta árið og árin enda bæði í skemmtilegum og áhugaverðum hlutverkum í sínu lífi.

_

Ég verð auðvitað að nefna það líka að ég var nú voðalega glöð að sjá mitt andlit í hópi þeirra sem einnig þóttu vel klæddar. Takk fyrir það.

xx,-EG-.

SUNNUDAGS INNBLÁSTUR

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Helgi Ómars

    31. December 2012

    Já var það svoleiðis!! Ég var pínu ringlaður! En þau áttu þetta svo sannarlega skilið – svo svo flott!

  2. Svart á Hvítu

    31. December 2012

    Ég þarf greinilega að fara að lesa blöðin.. voruð þið ekki líka í morgunblaðinu nokkur í gær?:) Til lukku með mjög skemmtilega tilnefningu, snilld!:)

  3. Daníel

    31. December 2012

    Sammála Guðmundur Jörundsson virkilega vel klæddur