Í dag tók ég stöðuna á áramótadressum sem enn eru til í verslunum landsins. Ég veit nefnilega að það eru fleiri eins og ég, ekki enn reddý með outfit fyrir annað kvöld. Fer ég rétt með mitt mál þar?
Opnunartími verslunarmiðstöðvanna er 10-13 á morgun, Gamlársdag.
Það er því loka séns okkar allra að finna áramótadressið.
Dressin að neðan eru mis mikið gala, en á morgun er allt leyfilegt – við erum allar ólíkar og viljum mis mikið glingur, þó að það séu áramót.
Þessi fyrir neðan gætu gengið!
Samfestingur á áramótum er alltaf málið. Sniðið á þessum er aðeins fínna, þar sem að hann er fleginn í hálsmálið.
Frá Lindex.
Ef að þið eruð plain í klæðaburði þá er ekkert kvöld betra til að nota hárskraut.
Frá: Lindex
Suit up stíll. Mjög save.
Frá: Selected Femme
Það var aðeins einn svona pallíettu jakki eftir. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Frá: Selected Smáralind
Perlubolur við loose buxur og háa hæla. Love it!
Frá: Selected Smáralind
Útsölurnar eru byrjaðar í Topshop. Þessi er meðal útsöluvara. Það voru ekki margir til.
Opinn yfir axlirnar. Flottur við svartar sokkabuxur.
Frá: Gallerí17
Kögur við hvíta skyrtu? Eða eitthvað annað.
Frá: Gallerí17
Hvítur toppur fleginn á bringu og bak. Ég sé hann fyrir mér við leðurbuxur og rauðar varir.
Frá: Zöru
Ef að þið viljið meira gala þá er þessi pörfekt.
Frá: Companys Kringlunni
Vonandi hjálpar þetta einhverjum sem er á síðasta snúning, eins og ég.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg