fbpx

ALÞJÓÐLEGI KONUDAGURINN

DAGSINSORÐ

Látum stjana svolítið við okkur í dag í tilefni dagsins, afþví að við eigum það skilið ..
– en í dag er alþjóðlegi konudagurinn –  alþjóðlegi baráttudagur kvenna.
Við megum svo sannarlega vera stoltar af þeim framförum sem hafa orðið síðustu árin. 


deda9b951baa59e121e166f5e3cfbb2704bcedbbc4138c48dde814e56faa7962behind-every-successful-woman-is-herself

to-a-women-who-is-strong-happy-womens-day764

Til hamingju með daginn konur af öllum toga. Áfram við!

xx,-EG-.

 

 

VINTAGE DIOR @ ANDREA BOUTIQUE

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Hjördís

    8. March 2014

    Ég vil benda ykkur á það að dagurinn í dag heitir á íslensku ,,Alþjóðlegur baráttudagur kvenna” þetta er ekki alþjóðlegur dekurdagur kvenna. Þessi dagur er helgaður baráttu kvenna til jafnréttis. Endilega skoðið vefsíðuna http://www.internationalwomensday.com/ til þess að fræðast meira um þennan mikilvæga dag.

  2. Silja Ástudóttir

    8. March 2014

    Æj, þetta er frekar vandræðalegt. Í dag er ekki alþjóðlegi konudagurinn heldur alþjóðlegi baráttudagur kvenna. Þetta er ekki alveg dagurinn þar sem konur láta stjana við sig heldur horfa til baka og gleðjast yfir áunnum réttindum, líta svo fram á veginn og fyllast kjarki og baráttuhug. Vona að þú bíðir ekki heima eftir rósum og konfekti. Baráttukveðjur.

  3. María

    9. March 2014

    Kæra Elísabet,

    Mig langar að benda þér á að þú ruglar hér saman dögum. Konudagurinn og alþjóðlegi baráttudagur kvenna (sem er í dag, 8.mars) eru tveir gjörólíkir dagar. Á konudeginum er sjálfsagt að konur láti dekra við sig. Það er þó ekki ætlunin með deginum í dag, http://www.internationalwomensday.com hér getur þú meðal annars kynnt þér málið betur. Ps. að sjálfsögðu á ekki einungis að óska konum til hamingju með þennan dag!

  4. Elísabet Gunnars

    9. March 2014

    Takk fyrir ábendingarnar. Ég bætti inn einni baráttumynd í póstinn sem og tók það betur fram hvers vegna við áttum að gera vel við okkur í gær. En ég lít þannig á að við getum dekrað svolítið við okkur í tilefni dagsins. Hér í franska mæta eiginmennirnir heim með blómabúntin á þessum degi enda eini konudagurinn hér í landi. Í póstinum er ég þó alls ekki að biðja um neitt slíkt fyrir sjálfa mig heldur vonast til að þið allar eigið sem bestan dag. :)