Ég hef áður (og oftar en einu sinni) tjáð ást mína á nýja H&M barninu – &OtherStories. Í þetta sinn er það september sem að kallar.
Þann 15. ágúst tilkynnti verslunin að nýjasta collectionið væri samstarf milli keðjunnar og skapanda merkisins Alöe Loungewear, Claire Judge, sem er þekkt fyrir lúxus undirföt og prêt-à-porter föt.
Línan sem Claire hannaði fyrir & Other Stories er sígild og inniheldur undirföt og “loungewear”. Línan er byggð upp á appelsínugulum, bláum og hvítum tónum ásamt blómamynstri.
Ég á nokkur undirföt frá versluninni og hef hingað til verið mjög ánægð með þá deild innan verslunarinnar. Ég er því sérstaklega spennt fyrir septemer þegar að vörurnar koma í búðir.
Svona léttklæðnað kýs maður heima hjá sér og því vel við hæfi að taka myndirnar í þannig umhverfi.
Elska lookbook-ið. Módelið er svo flott og persónulegi sjarminn skilar sér í myndunum.
Æ lov!
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg