Þið sem að þekkið mig vitið hversu mikil áhugamanneskja ég er um fólk. Ég elska að komast í mikið mannlíf þar sem að ég pæli í hverjum og einum. Hvaðan ætli einstaklingurinn sé? Hvernig býr hann? Hvert er starfsheitið? Uppruni? Og áfram mætti telja.
Það gefur því að skilja hversu mikil draumaborg París er fyrir mig að heimsækja. Parísarfólk er jafn ólíkt og það er margt. Fyrir mig er það ekki aðeins að geta fangað einhverja eina töff týpu heldur eru það frekar mómentin og lífið sem að ég fæ út úr því að smella af ólíku fólki hverju sinni.
Njótið ..
Þessi var alveg með þetta ! Svartklæddur frá toppi til táar en stíliseringin til fyrirmyndar.
.. Oh, vonandi aftur fljótlega.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg