English Below
Ég hef lengi verið mikill aðdáandi 66° Norður. Það eru fyrst og fremst vörur merkisins sem ég er hrifin af, en einnig ímynd fyrirtækisins, auglýsingarnar og starfsfólkið. Jökla Parka hefur haldið á mér hita síðustu mánuði. Ég er ástfangin upp fyrir haus! Þetta er að mínu mati fallegasta parka sem 66° Norður hefur nokkurn tíma hannað. Hún kemur í dökkbláu, svörtu og earth grey og í tveimur sniðum; karla og kvenna. Ég fékk mér karlasniðið í dökkbláu.
Við Snorri Björns hittumst fyrir stuttu og tókum myndir af úlpunni. Hann er einn hæfileikaríkasti ljósmyndari sem ég þekki. Mæli með því að fylgjast með honum á instagram og snapchat: snorribjorns.
I’ve been a fan of 66° North for a long time. It’s first and foremost the clothing I love, but also the company’s image, the campaigns and the employees. Jökla Parka has been keeping me warm for the past few months. I’m head over heels about it! In my opinion it’s the most beautiful parka 66° North has ever made. It is available in navy, black and earth grey and in two fits; men’s and women’s. I took the men’s fit in navy.
Photos: Snorri Björns. One of the most talented photographers I know. I recommend following him on instagram & snapchat: snorribjorns
xx
Andrea Röfn
Þessi færsla er skrifuð í samstarfi við 66° Norður
–
Fylgist með mér á instagram: @andrearofn & snapchat: andrearofn
Follow me on instagram: @andrearofn & snapchat: @andrearofn
Skrifa Innlegg