UPPFÆRT
Með hjálp random.org fékk ég upp happatölu dagsins = 36
Það komment sem situr í því sæti er frá lesandanum Unni Erlendsdóttir.
Njóttu vel og mikið Lava Shell meðferðarinnar.
Vinsamlegast hafðu samband á eg@trendnet.is fyrir frekari upplýsingar.
Takk allir sem tóku þátt. Munið eftir 30% afslættinum til og með 15 ágúst.
_
Ég byrja helgina á því að bjóða lesendum uppá dásamlegan dekur-díl.
Ég heimsótti Snyrtistofu Ágústu á dögunum þar sem mér var boðið í smá dekur. Ég vissi lítið um meðferðina en kynnti mér hana vel áður en ég samþykkti að koma í heimsókn. Um er að ræða Lava Shell nudd, sem hefur verið vinsæl meðferð á helstu lúxus hótelum úti í heimi undanfarið og er nú nýlega komin til Íslands.
Nudd er ekkert endilega alltaf fyrir mig en þetta var eitthvað nýtt – heitar skeljar sem ná djúpt að vöðvunum en þó með notalegum hætti. Ég var endurnærð á eftir sem er ástæða þess að ég sit hér og skrifa nokkrar línur. Þetta þurfa fleiri að fá að upplifa.
Frá og með í dag og fram að 15 ágúst gefst lesendum bloggsins 30% afsláttur af þessari dásemdar nýjung.
Klukkutíma meðferð kostar 12.900 ISK
Okkar verð: 9.030 ISK !!
Það sem betra er þá ætla ég einnig að gleðja heppinn lesanda með gjafabréfi í Hafnarstrætið þar sem Lava Shell nuddmeðferðin fer fram. Merkið nafnið ykkar í komment á þennan póst eða nafn þeirra sem þið teljið að eigi slíkt dekur skilið. Látið orðið berast um helgina með deila hnappinum neðst til hægri og fylgist með á mánudag þegar ég dreg út heppinn einstakling.
Eigið gleðilega sólríka helgi með góðri kveðju yfir hafið.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg