Ný fatalína Svölu Björgvinsdóttur er komin í sölu. Þetta er önnur lína Svölu undir merkinu Kali collection en söngkonan hefur lengi verið þekkt fyrir sinn persónulega stíl sem margir líta upp til.
Þó að Svala þori að stíga út fyrir boxið í sínum klæðaburði þá er Kali Collection ekki endilega í takt við það. Þar býður hún upp á fatnað sem ætti að henta flestum, flíkur sem hægt er að klæða upp og niður eftir stað og stund. Ég er virkilega hrifin af nokkrum flíkum og leyfi þeim að fylgja með hér fyrir neðan. Línuna í heild sinni geti þið svo skoðað: HÉR
Mér finnst síðasta peysan æðisleg en printið var unnið af AC Bananas, Ella Egilssyni.
Svala “Kali” Björgvinsdóttir veit hvað hún syngur …
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg