Ég keypti mér svo fallegan blómvönd í gær að það var ekki annað hægt en að taka myndir hér heima í dag enda færa blóm svo mikið líf inn á heimilið, blómvöndinn fann ég nú bara í minni venjulegu búðarferð við hliðina á grænmetisrekkanum á ofsa góðum prís svo ég gat ekki annað en kippt honum með. Ég er ekki frá því að blómvöndurinn hafi haft aldeilis góð áhrif því ég var farin að taka til í skúffum og í öllum krókum og kimum í lok dagsins, ég þarf greinilega oftar að kaupa mér blómvönd:) Myndirnar birti ég á Instagram síðunni minn @svana_ sem ykkur er velkomið að fylgjast með.
Plakat: Scintilla, Blómavasi: Finnsdóttir, Púðar: Hay og Further North.
Það sem að ég er skotin í þessum fallegu blómum ♡
Skrifa Innlegg