Zara er svo ótrúlega mikið með þetta í haust lookbooki sínu !
Það er eiginlega pirrandi hversu háan standart Zara hefur náð í mínum huga. Ég tryllist í hvert skipti sem að birtar eru nýjar línur. Það sem að er svo pínu leiðinlegt er að ég verð svo alltaf fyrir pínu vonbrigðum þegar að ég sé vörurnar komnar í verslunina. Milljón stykki til sölu af sömu flíkinni á allt of háu verði fyrir minn smekk af svoleiðis kaupum. Kannski er ég of dómhörð en það fer pínu í mig hvað þau hækka verðið mikið með árunum. Vörurnar verða reyndar líka fínni með árunum – svo það er kannski winwin. Ég veit það ekki? Hvað finnst ykkur?
Taka: Patrick Demarchelie
Stílisti: Marie-Amélie Sauvé
Módel: Nokkrar af þeim allra flottustu – Julia Nobis, Ashleigh Good, Caroline Brasch Nielsen, Juliane gruner og Mijo Mihaljcic
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg