Ég rakst á þetta skemmtilega “tískublogg” um daginn.
En það er stelpa í Berlín sem heldur úti þessu myndabloggi. Hún tekur mynd af sama manninum, Ali, sem gengur framhjá vinnustað hennar, kaffihúsi í Berlín, klukkan 9:05 á hverjum degi. Fatastíll hans og áhugi á tísku varð til þess að hugmyndin af blogginu kviknaði.
Óvenjulegt en mjög skemmtilegt blogg.
Sjarmerandi gamli kall.
Ég læt myndirnar tala sínu máli – Ali er alveg með þetta!
xx, EG
Skrifa Innlegg