Takk kærlega fyrir frábæra þátttöku í Instagram leiknum okkar í sambandi við Tískudaga Smáralindar. Tæplega 500 myndir voru merktar með #trendsmaralind og því var valið ekki auðvelt.
Þrjár myndir hlutu gjafabréf í útvöldum verslunum Smáralindar.
@nataliablaer hlýtur 20.000 kr. gjafabréf í Levi’s Smáralind fyrir þessa mynd af verslunarferð í Smáralind.
@annamaggy biður um heimsfrið og hlýtur að launum 20.000 kr. gjafabréf í Corner Smáralind.
@torunnivars hlýtur 20.000 kr. gjafabréf í Gallerí Sautján Smáralind fyrir þessa fínu samsetningu.
Sigurmyndin og aðalvinningur að þessu sinni hlýtur 40.000 kr. gjafakort í Smáralind ásamt því að fá að velja sér Nike Free skópar frá Kaupfélaginu/Skór.is – Lucky you!
SIGURMYNDIN:
@johannastebbasim er sigurvegarinn í þetta skiptið – þessi litla fashionista skartar vel völdum aukahlutum sem hún hefur fundið í Smáralind um helgina. Til hamingju!
Allir sigurvegarar eru beðnir um að senda póst á trendnet@trendnet.is til að fá upplýsingar um hvernig þeir nálgast vinningana.
Haldið áfram að merkja #trendnet – það greinilega borgar sig!
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg