Söngkonan Solange giftist unnusta sínum Alan Ferguson um helgina. Brúðurin klæddist dramatískum síðkjól með slá fyrr um daginn hannaðann af Humberto Leon fyrir Kenzo. Þegar líða tók á daginn skipti hún yfir í glæsilegan hvítan samfesting (sem einnig var með slá) hannaðann af Stéphane Rolland. Þemað var hvítt á stóra daginn því aðrir gestir brúðkaupsins klæddust einnig í stíl, þar á meðal stóra systir hennar, sjálf Beyonce, sem var dugleg að birta myndir á Instagram síðu sinni frá brúðkaupinu. Myndirnar að neðan eru fengnar að láni þaðan.
Góð hugmynd með hjólið … öðruvísi en virkar.
Til hamingju með brúðkaupsdaginn, glæsilega Solange Knowles! Þegar ég verð stór ætla ég að vera eins svöl og þú.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg