Ég hef alltaf tengt marmara við lúxus. Munstur sem er tímalaust og gefur kalt en klassískt lúkk. Uppá síðkastið hefur hvítur marmari kallað á mig í mörgum myndum. Það er ekki alltaf alvöru en það er fegurðin fyrir augað, marmaraprentið sem heillar. Mig langar .. í margt.
Ég hef aldrei notað hulstur á símann því mér finnst síminn snyrtilegri án þess. Þetta gæti ég samt hugsað mér að bera.
Fæst: HÉR
_
Strákabol frá Soulland sem ég myndi nota sjálf (Sorry Gunni).
Fæst: HÉR
_
Svarta Nike Roshe Run með marmara botni.
Hvar finn ég þá í sölu í minni stærð?
_
Hvítt og gyllt Suzy Gold Leaf & Marble borð .. drauma.
Yndislegu Ferm Living rúmfötin sem hafa lengi verið á óskalistanum.
Fást: HÉR og í Hrím Laugavegi
_
HAY bakka sem gengi undir svo ótrúlega margt.
Fæst: HÉR
_
Marmaramunstur er print sem að gengur fyrir allavega týpur af fólki … held ég.
Ég hefði getað sýnt ykkur fleiri hluti en bara þessa að ofan sem heilla mig þessa dagana.
Manni langar í margt en getur víst ekki eignast alveg allt. Mest myndi mig langa í eins og einn eldhúsvegg en það kostar fleiri peninga og þyrfti að vera inná framtíðar heimilið.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg