Hverjum hefði dottið í hug að ég myndi birta póst þess efnis að langa í inniskó, þessa týpísku, sem að alltaf hafa verið til en ég ekki tekið eftir fyrr en núna nýlega. Celine var fyrst til að búa til sumar trendið á pöllunum en þessar hér fyrir neðan seldu mér inniskóna. Ashley Olsen hvað þá mest!
Nú er það pælingin. Hvora týpuna af þessum tveimur langar mig í?
Þetta eru svona kaup sem að er auðvelt að sannfæra mömmu, pabba eða maka um að kaupa. ,,Þeir eru nefnilega svo góðir fyrir fæturnar”! :)
Birckenstock skórnir hafa verið í sölu á Íslandi frá því árið 1978 (!)
Vitið þið hverjir eru með þá í sölu þar í dag?
Skrifa Innlegg