H&M heldur áfram að velja rétt.
Næsta samstarf með Isabel Marant er eitt það mest spennandi til þessa að mínu mati – ég kannski segi þetta í hvert skipti?
Isabel Marant kemur frá París og því má búast við miklum vinsældum línunnar í mínu heimalandi.
Hún lýsir Parísar stílnum sem veitir henni innblástur svona:
,,You dress up, but do not pay too much attention and still look sexy”
Línan kemur í verslanir 14. nóvember, en þá verð ég líklega föst í biðröð ef einhver vill ná í mig!
Isabel mun einnig hanna herralínu, en það er í fyrsta sinn sem hún gerir það.
xx, EG
Skrifa Innlegg