Ég fæ ekki leið á að fletta í gegnum myndir helgarinnar frá showi Yeoman.
Sú hefur viljað hafa STUÐ – diskó og djamm.
Var það ekki pælingin?
Myndir: ItalianVogue(geggjað!), NowFashion, Edit&Óskar.
Ég fýla netaklæðin og elska slárnar sem að voru einmitt líka í sýningu hennar í fyrra.
Neon litirnir kannski “toomuch” fyrir haustið? Ég er enn að meta það.
Sýningin var allavega stuð út í gegn – sem að skilaði sér til mín.
Ég hefði samt viljað sjá öll lookin, vitiði hvar ég get séð þau dress fyrir dress á myndum?
Hildur er listamaður – það verður ekki af henni tekið.
xxx,-EG-.
Skrifa Innlegg