Góðan daginn!
Þið vitið eflaust einhver af veru minni á Íslandi þessa dagana? Ég er allavega búin að þeytast um bæinn síðustu daga. En ég er hér í stuttu vinnustoppi í þetta sinn.
Lindex opnar nýja kvenfataverslun í dag á annarri hæð í Kringlunni. Ég stend þar vaktina frá 12:00 og aðstoða gesti og gangandi. Sérstakir miðar hafa verið útbúnir fyrir mig til þess að merkja mínar uppáhalds flíkur í nýju búðinni.
“ELÍSABT GUNNARS MÆLIR MEД …
Ég mæli með þessum flíkum … en ég mæli líka með því að þið kíkið við í Kringlunni og heilsið uppá mig þar.
Munið síðan að merkja réttu trendmómentin næstu daga. Það er til mikils að vinna.
#TRENDNET #LINDEXICELAND
Sjáumst!
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg