Ég er algjör dóni þessa dagana hlustandi á nýjar útgáfur af “Drunk in Love” sem drottningin B gaf út ásamt eiginmanni sínum í lok síðasta árs. Til að útskýra dóni, þá er ástæðan sú að nýju útfærslurnar eru í grófara lagi, vægast sagt. Er þetta eitthvað sem við eigum bara að venjast?
Lagið er algjört lím á heilann því ég get hlustað á það endalaust.
_
Ég kann að meta þessa útgáfu frá The Weeknd, þar sem hún er aðeins rólegri. En textinn er samt svakalegur.
Hin nýja útfærslan á laginu er líkari upprunalegu þar sem Beyonce og Jay Z blanda geði með Kanye West, góðvini sínum.
Hér er síðan upprunalega útgáfan fyrir áhugasama.
Lag á repeat hjá mér og því deili ég því til ykkar …
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg