English Version Below
Ég var svo heppin að fá senda gjöf frá sænska úramerkinu Daniel Wellington á dögunum. Úr sem ég hef borið á arminum síðan það komst í mínar hendur. Daniel Wellington er orðið nokkuð vel þekkt hérlendis enda fallega einföld hönnun sem hægt er að breyta á léttan veg með því að skipta um ól. Ég valdi mér minni stærðina með tvennskonar leðurólum en sé smá eftir því að hafa ekki valið íslensku fánalitina líka. Hugsa að ég fjárfesti mögulega sjálf í þeirri ól.
Það er svo gott að taka með sér tölvuna í hin og þessi horn til vinnu – þannig kem ég meiru í verk. Átti einn slíkan mánudagsmorgun með mínum manni á rigningardegi fyrir skemmstu.
Svart sterkt kaffi og svört ól.
//
I have been wearing my new Daniel Wellington watch since I got it as a gift couple of weeks ago. I chose a simple black one – basic is always the best!
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg