Á föstudaginn kemur fer fram Sneakerball NIKE í fyrsta skipti á Íslandi. Aðeins þetta eina kvöld verður Norðurljósasalnum í Hörpu breytt í flottasta klúbb Reykjavíkur, í samstarfi við Smirnoff og Somersby. Fram koma;
DJ Margeir – Unnsteinn Manuel – Ásdís María – John Grant – Cell7
Það verður ein regla í gildi þetta kvöld: Mættu í þínum fegurstu NIKE skóm.
Ég er orðin gríðarlega spennt enda sneaker freak út í gegn. Með viðburðinum á að ýta undir sneaker menninguna og hvetja fólk og sérstaklega stelpur til að nota strigaskóna ennþá meira og jafnvel mæta í þeim út á lífið.
Til að komast inn á Sneakerball þarf að framvísa boðskorti. Svo að lesendur Trendnets geti mætt og skemmt sér NIKE style þá ætla ég að gefa nokkra miða á snilldina. Það eina sem þið þurfið að gera er að merkja myndirnar ykkar á instagram með
#TRENDNIKE
og
#SNEAKERBALL_RVK
Ég hlakka til að sjá myndirnar sem bætast við fína hashtaggið okkar #TRENDNIKE – ætli við náum upp í 2000 myndir?
Love is in the air..
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg