fbpx

RFF #3 – JÖR

Þriðja  og jafnframt síðasta sýningin mín á RFF var fyrir JÖR by Guðmundur Jörundsson –

RFF var lokað með svakalegri sýningu frá tískuhúsinu. Reykur og blikkandi ljós hengu úr loftinu og andrúmsloftið var rafmagnað. Allir biðu spenntir. Módelin gengu svo í takt við rokktónlist og sýndu glæsilegu línuna og gáfu áhorfendum gæsahúð. Línan er dramatísk, full af síðum aðsniðnum flíkum í bland við fallega sniðna jakka og kápur, skyrtur og rifnar gallabuxur. Gull choker-ar og belti settu svip á sýninguna sem og skórnir sem eru einnig hönnun Guðmundar. Make-up og hárlúkkið var tryllt; dökk augu, svartur varablýantur, gervilokkar í vörunum, svartir og hvítir hárlokkar yfir andlitinu og svört rót.  Að mínu mati virkilega flott sýning og á Hrafnhildur Hólmgeirs snillingur stórt hrós skilið fyrir fallega stíliseringu. Jör by Guðmundur Jörundsson lokaði hátíðinni á glæsilegan hátt og er Guðmundur kominn ofarlega á lista yfir bestu hönnuði landsins. Það var virkilega skemmtilegt að vera partur af sýningunni.

jörguillaumeroujas1jörbirta1 jörbirta3 jörbirta4 nowfashion1 nowfashion2 nowfashion4 nowfashion5

nowfashion6 jörbirta2jörguillaumeroujas

jörbirta5

jöreyglo4 jörbirta6 jörbirta7 jörbirta8 jörbirta9 jöreyglo3

jöreyglo6 jöreyglo7

Fríða María hannaði make-up útlitið fyrir JÖR

jörernahrund

jöreyglo8

jöreyglo1

jöreyglo2

jöreyglo5

nowfashion7

MYNDIR:
Birta Rán
Guillaume Roujas fyrir nowfashion.com
Eygló Gísla
Erna Hrund

Takk fyrir mig JÖR!

xx

Andrea Röfn

 

NIKE BY AIR OPNAR Í DAG

Skrifa Innlegg