fbpx

OUTFIT

OUTFIT

Sólríkur dagur í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Fríið mitt þar var yndislegt og það var kærkomið að slappa aðeins af þegar skólinn var loksins búinn. Ég átti quality time með Köben-búunum mínum og heimsótti svo vinkonu í Malmö. Ég er svo mikill Svíi í hjartanu þannig að það var rosalega kósý að fara aðeins yfir til Malmö og heyra sænskuna :-)

Processed with VSCO with p5 preset

Ég keypti mér þessa trufluðu skyrtu/blússu frá Acne Studios úti. Þetta er uppáhalds liturinn minn og ég gat alveg ómögulega skilið hana eftir í búðinni. Mín reynsla af Acne fötum er líka ekkert nema góð, föt sem maður verður aldrei þreyttur á þar sem þau eru gæði út í gegn.
Skóna fékk ég í Húrra Reykjavík fyrir stuttu en mig hafði dreymt um woven skó frá Nike lengi lengi. Litirnir í skónum eru svo flottir og passa líka vel við nýju skyrtuna!

Processed with VSCO with p5 preset Processed with VSCO with p5 preset Processed with VSCO with p5 preset

Skyrta: Acne Studios
Skór: Nike Free Inneva Woven // Húrra Reykjavík
Sunnies: DIOR

xx

Andrea Röfn

NEW IN

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Nína

    6. July 2016

    Hææ veistu í hvaða lit Dior reflected sólgleraugun þín eru? Þau er geggjuð!

    • Andrea Röfn

      15. July 2016

      Hæhæ. veit ekki hvort liturinn heiti eitthvað en þau eru allavega silfurlituð og með svörtum hliðum :)