Góð mæðgnastund hjá okkur mömmu samanstendur yfirleitt af bæjarrölti og kaffibolla. Svo bætist stundum outfit myndataka við rútínuna en mamma er að verða orðin nokkuð góð í þeim málunum. Þetta outfit er frá síðustu helgi – örlítið underdressed miðað við veðrið en gangan heldur nú yfirleitt á manni hita.
Bolur: Ég fékk þennan bol í uppáhalds búðinni okkar Gulla í Nijmegen. Hún heitir 24/7 og selur mjög töff skate og street fatnað, að vísu á stráka. Ég hafði haft augastað með bolnum lengi og ákvað svo að splæsa rétt fyrir jól. Merkinu er ég ekki alveg klár á.
Kápa: MONKI – er með hana að láni frá vinkonu en hún er ofarlega á mínum óskalista enda mjög falleg og hentar við svo margt.
Buxur: H&M
Skór: Eldgömul boots frá H&M
Töskuna fékk ég í jólagjöf og ætla að sýna ykkur betur fljótlega.
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg