fbpx

BOSS ORANGE

Nýjasta ilmurinn minn er BOSS Orange frá Hugo Boss. Ég hef vitað af ilminum lengi og hef yfirleitt sett hann á mig á flugvöllum og í snyrtivörubúðum til að máta hann á mér. Það kom svo að því að gamla ilmvatnið mitt kláraðist og því langaði mig að breyta aðeins til og BOSS Orange varð fyrir valinu. Ilmurinn er vel kunnugur mörgum enda hefur hann verið vinsæll í rúm fjögur ár.

BOSS Orange ilminum er lýst sem grípandi, fullum af einkennum nútíma kvenleika. Kröftugur og heillandi með flauelslíka áferð, ástríðufullur, afslappaður og fullur af sál.

Top Note:
Crispy Apple, Bergamot, White Peach
Heart Note:
Orange Flowers, Plum, Cinnamon Stick
Base note:
Creamy Vanilla, Sandalwood, Olivewood

Glasið finnst mér mjög fallegt og hentugt

Sienna Miller er andlit ilmsins og hér má sjá myndband sem fylgdi útgáfunni – Sienna er með þetta eins og venjulega.

xx

Andrea Röfn

GOLDEN GLOBE KJÓLARNIR

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1