Á laugardaginn kemur verða Ampersand stöllurnar Eva Dögg og Anna Sóley með DETOX námskeið . Þar munu þær deila sínum bestu Detox momentum og miklum fróðleik um Detox af öllu tagi. Á námskeiðinu verður snert á ýmsum flötum sem snúa að alhliða hreinsunum, allt frá ayurvedískum aðferðum að djúsföstum og ýmsum daglegum mini detoxum fyrir huga, heimili og líkama. Ef þið hafið áhuga á djúsföstum, hreinsandi baðferðum, skápadetoxi eða bara almennri afeitrun á sál og líkama þá er námskeiðið eitthvað fyrir þig.
Námskeiðið þann 11. febrúar stendur frá 11-15 og verður haldið í Gló – Fákafeni. Mig langar í samstarfi við Evu og Önnu að gefa einum heppnum lesanda Detox námskeið!
Til að taka þátt þarf að:
– Deila færslunni á Facebook
&
– Skrifa athugasemd hérna undir með nafni og netfangi
Ég hef svo samband við vinningshafann á morgun, föstudag. Í event-inum hér getið þið svo lesið örlítið meira um það sem farið verður yfir á námskeiðinu!
Sjá þessi yndi! Mikið vildi ég að ég kæmist – ég hefði svo gott af góðum ráðum um Detox eftir allt flakkið sem ég hef verið á síðustu vikur. En fljótlega ætla ég að gera svolítið skemmtilegt með Ampersand stöllunum og hlakka til að leyfa ykkur að fylgjast með.
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg