Góðan og gleðilegan fimmtudag. Ég heimsótti Hildi Yeoman og fallegu verslunina hennar Yeoman í síðustu viku. Nýjasta línan hennar SPLASH! er komin í sölu og hjálpi mér!! Ég elska hverja einustu flík í þessari línu. Litapallettan er svo innilega falleg og gleðileg, í anda elsku Hildar. Ég mæli með því að þið kíkið til Hildar og finnið ykkur eitthvað fallegt fyrir sumarið eða í pakka til einhvers sem ykkur þykir vænt um. Sjón er sögu ríkari!
Skór: JoDis by Andrea Röfn
Skoðið alla SPLASH! línuna hér.
Andrea Röfn
Fylgið mér á instagram @andrearofn
Skrifa Innlegg