fbpx

BROOKLYN FLEA GOODS

Í sumar fór ég á flóamarkað í Williamsburg eins og ég skrifaði um

Ég nældi mér í nokkra fallega hluti, hér eru þeir

VINEYARD bolur – ég veit ekkert hvort þetta sé þekkt, en mér fannst þetta mjög nettur bolur. Ég keypti hann hjá ungum manni sem seldi einungis boli og var örugglega með hátt í 500 boli í litla básnum sínum. Klæddist honum hér.

10$

Upptakari, Pepsi Cola

6$

Gamalt belti úr snákaskinni, fékk það hjá stelpu sem var með mikið af fallegum skartgripum, töskum og beltum. Notaði það hér.

10$

 

Krukkur, eins og sjást úti um allt í dag.  Þessi til hægri er eldri og orðin örlítið fjólublá.

15$

Ég skreytti krukkurnar aðeins um daginn með drykk og blómum – sýni ykkur það.

Þetta er alveg frábær markaður. Fyrir ykkur sem hafið áhuga á honum og eruð í New York, þá eru upplýsingar hér.

xx

Andrea Röfn

AFTERNOON DELIGHT

Skrifa Innlegg