fbpx

HJÓLIÐ MITT

Nú á ég hjól!

Ég á einn frábæran vin sem er mjög klár í að laga og gera upp hjól. Þegar ég hitti hann fyrir rúmu ári síðan var hann á ótrúlega flottu hjóli og ég minntist á hvað mig langaði mikið í hjól. Hann hafði svo samband fyrir stuttu og sagðist vera að gera upp gamalt hjól sem myndi verða mitt!

Ég er himinlifandi með nýja gripinn, litirnir eru sérstaklega fallegir saman og það er gott að hjóla á því. 

Þetta er gamalt kvenhjól sem átti að henda. En hann tók það í sundur og lét poly-húða það, lagaði gírana og kom því í gott stand. Svo keypti ég nýjan hnakk og höldur hjá Kría cycles.

Ég er búin að hjóla um allan bæ síðustu daga, og þannig verður það á meðan veður leyfir. Að hjóla er gaman, fínasta líkamsrækt og umhverfisvænt allt á sama tíma.

Næst á dagskrá: kaupa fallegan hjálm og auðvitað hjóla meira

xx

Andrea Röfn

 

KLIPPING

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Pattra's

    22. August 2013

    Dásamlega fagurt hjól, til hamingju með það :) Svo gaman að eignast hjól!!

  2. Ragnhildur

    23. August 2013

    Gullfallegt hjól!

  3. Elín Eva

    24. August 2013

    Frábær vinur sem þú átt ;) þetta hjól er æði!

  4. Ágústa Jónasdóttir

    22. July 2015

    Sæl

    Þetta er soldið gamall póstur hjá þér, en ég var að gúggla og rakst á þetta.
    Er einmit tmeð gamalt hjól sem ég tími engan vegin að henda og langar að láta gera það fínt.
    Er vinur þinn enn að gera upp hjól? ef svo er máttu endilega láta mig vita.

    kv Ágústa