fbpx

BROOKLYN FLEA WILLIAMSBURG

Ég var stödd í New York síðustu helgi –

Gulli kærastinn minn sagði mér að fyrst ég yrði þarna á sunnudegi þá væri skylda að kíkja á flóamarkað í Williamsburg, Brooklyn Flea, en hann hafði nokkrum sinnum farið á markaðinn

Það gerði ég, og vá hvað ég var ánægð með það. Ég eyddi einhverjum þremur tímum þarna á flóamarkaðnum þar sem selt er alls kyns vintage dót sem og nýtt; húsgögn, föt, skór, skartgripir, húsmunir, dót, hjól og endalaust af skemmtilegum hlutum..

Ég fór svo á innimarkað þar sem hönnuðir sýndu hönnun sína og þar voru líka second hand föt

Endaði svo á því að fá mér kaffi hjá þessum skemmtilega manni

Mig langaði í svo rosalega margt sem í boði var, en aðallega húsgögn sem pössuðu ekki alveg ofan í ferðatösku. Ég keypti mér nokkra hluti, sem ég mun glöð sýna ykkur fljótt!

Góður dagur í Williamsburg, þar sem andinn er allt annar en inni á Manhattan, afslappaður og skemmtilegur. Brooklyn Flea er skylda fyrir ykkur sem eruð í New York á sunnudegi.

xx

Andrea Röfn

 

 

NÝTT

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Elísabet Gunnars

    31. July 2013

    Oh hvað þetta hefur verið góður dagur ! x
    Lúxuslíf þetta fluffuhlutverk :)

  2. Berta

    31. July 2013

    Vá nice

  3. Svart á Hvítu

    31. July 2013

    Besti flóamarkaður sem ég hef farið á… langaði í alltof mikið en endaði allavega með nokkrar gersemar:)

  4. Helga Vala

    9. August 2013

    Vá hvað þessi útimarkaður er geðveikur! Hefðum átt að fara þangað við stelpurnar.
    Ps. Mig langar mjög mikið í þessi lukkutröll!

    • Andrea Röfn

      9. August 2013

      Ég tók mynd af þeim sérstaklega fyrir þig!! <3

  5. Anna María

    4. September 2014

    Ú geggjað, hlakka til að kíkja á þennan :)