Í sumar fór ég á flóamarkað í Williamsburg eins og ég skrifaði um
Ég nældi mér í nokkra fallega hluti, hér eru þeir
VINEYARD bolur – ég veit ekkert hvort þetta sé þekkt, en mér fannst þetta mjög nettur bolur. Ég keypti hann hjá ungum manni sem seldi einungis boli og var örugglega með hátt í 500 boli í litla básnum sínum. Klæddist honum hér.
10$
Upptakari, Pepsi Cola
6$
Gamalt belti úr snákaskinni, fékk það hjá stelpu sem var með mikið af fallegum skartgripum, töskum og beltum. Notaði það hér.
10$
Krukkur, eins og sjást úti um allt í dag. Þessi til hægri er eldri og orðin örlítið fjólublá.
15$
Ég skreytti krukkurnar aðeins um daginn með drykk og blómum – sýni ykkur það.
Þetta er alveg frábær markaður. Fyrir ykkur sem hafið áhuga á honum og eruð í New York, þá eru upplýsingar hér.
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg